Fjöldamótmæli gegn spillingu bera árangur í Rúmeníu. Í vikunni sem leið mótmæltu allt að sex hundruð þúsund manns í Rúmeníu. Mótmælin eru þau stærstu í landinu síðan 1989 þegar einræðisherrann Nicolae Ceaușescu var hrakinn frá völdum og þau virðast hafa borið árangur, til skamms tíma að minnsta kosti.
La Reykjavík, Islanda despre guvernul din Rúmenía :
„✊ Á nóttunni, eins og þjófnaður !!!”.
Strigam si noi :
„? Niður með ríkisstjórn Grindeanu & Dragnea, þjófnaður þjófar !!! „
Efnt var til þingkosninga í Rúmeníu í desember í fyrra eftir að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Victor Ponta, sem sætti ásökunum um spillingu, sagði af sér nokkrum mánuðum áður eftir að bruni sem kom upp á skemmtistað í Búkarest olli því að þrjátíu og tveir létu lífið. Jafnaðarmannaflokkurinn Partidul Social Democrat (PSD) vann stórsigur í kosningunum og hlaut um 46% atkvæða þótt kosningaþátttaka hafi einungis verið um 39,5%, og hóf það vandasama verk að skipa ríkisstjórn. Eftir því sem leiðtogi PSD, Liviu Dragnea, hlaut tveggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm árið 2012 fyrir kosningafúsk í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort höfða ætti mál gegn þáverandi forseta landsins, Traian Băsescu, gat hann samkvæmt lögum ekki verið útnefndur forsætisráðherra.
… mai mult la : kjarninn.is
Descoperă mai multe la Islanda 🇮🇸 mapamond🌐media
Abonează-te ca să primești ultimele articole prin email.